Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD241223
Source: GlobeNewswireÖlgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum þriggja mánaða víxli, OLGERD241223 fyrir 860 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 9,90% flötum vöxtum, en víxillinn verður skráður í kauphöll Nasdaq Iceland.
Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a., c. og d.-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra.
Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 26. september nk.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Þorsteinn Oddleifsson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs í síma 820-6491
eða jon.thorsteinn.oddleifsson@olgerdin.is